Entry: hate it or love it Monday, June 18, 2007



Hún heitir ekki Kolla hún heitir Kolbrún en er kölluð Kolla. Takk fyrir að leiðrétta þann miskiling elsku börn.

Er búin að sjá fram á það að ég þurfi ekki á neinni utanlandsferð að halda í sumar, þar sem að mín vinna fer aðallega fram úti, verst að maður geti ekki bara verið á bikiníinu og með sólarolíuna, nei annars, það er kannski verst Big Smile

Ein stelpa sem varð tvítug um daginn, sagði að nú biði hún bara eftir að fá jólakortin frá vinkonum sínum þar sem að þær væru allar orðnar óléttar eða komnar með börn. Já hugsaði ég, þetta hlýtur að fara að koma hjá mér (ekki óléttan heldur kortin!), en shit, svo fór ég að að trekkja aðeins í gullfiskaminninu góða. En Kolbrún kölluð Kolla, þú átt allavega 7 vinkonur sem eiga börn og ein önnur að bætast við, vertu heppin að það komi allavega eitt jólakort sem stendur frá þinni vinkonu (ekki það ég telji mig vera neitt óheppna með öll þessi börn Big Smile) aðeins ágætt að vita að það er einhver sem stendur með manni í þessu Wink

   2 comments

Kolla
June 22, 2007   08:25 PM PDT
 
ja hérna hér, ég held að þær séu farnar að bætast við á hverri viku þessa dagana :)
Gugga
June 19, 2007   07:44 PM PDT
 
9 með mér :D

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments