Entry: Guiding Light Monday, May 28, 2007



Jæja Guðrún farin til Kína í hvorki meira né minna en þrjár vikur!!!

Helgin búin að vera aðeins of nice. Kíkti á austurvöll með Þóru, Hildi og Hörpu í góða veðrinu í gær og ég hélt í smá stund að ég væri komin til Spánar. Já þarna sátum við með bjórinn og pitsuna á meðan gaurarnir við hliðin á okkur spiluðu á gítar. Væri til í að eiga öllum mínum helgum þar í sólbaði. Hitti svo hana Lovísu Ósk og fórum í trúbadorastemminguna á Celtic. Ja hérna, þegar maður er í fríi er ekkert betra að chilla og það er það sem ég ætla sko að gera það sem eftir er dags. Játs, leiðarljós var að byrja og ég hálf skammast mín fyrir það að hafa bara ekki horft á það í rúmlega ár, vegna beverly hills ;) jæja ætla að hætta þessu rugli og komast að því hvað í andskotanum Alan Spaulding var að gera í fangelsi.

Adios

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments