|
|
|
Sunday, May 06, 2007
þetta er nú meiri snilldin 
Annars mest lítið að frétta var í þessum "töluðu" orðum að leggja inn umsókn á Bifröst, svo að ef allt gengur vel þá verð ég í frumgreinadeild haustið 2007 áður en ég hef svo námið á fullu í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði 
Stór helgi framundan, ég er í sömu sporum eins og alltaf þegar líður á kosningarnar og hef enn ekki ákveðið hvað ég mun kjósa, er nú samt búin að útiloka tvo flokka svo að vonandi fer þetta að skýrast, en samkvæmt þessu prófi eru flokkarnir sem að ég var búin að útiloka þeir flokkar sem ættu að höfða til mín.

nei andskotinn, ég held að ég yrði ekki velkomin í fjölskylduna ef að ég myndi merkja x við þessa.
Í dag eru 49 þangað til íslensku kanarnir koma til baka

oh það verður ljúft að knúsa og fara að rífast aftur við litlu kindina mína (karen lind, muhaha) og horfa á skemmtiatriðin hjá bíladellukallinum.
þangað til næst.
Posted at 5/6/2007 4:53:55 pm by kollar
Permalink
Thursday, May 03, 2007
Báran kyssir sandinn sandurinn kyssir goluna golan kyssir sveininn sveinninn kyssir meyna og nú ætlar sólin að fara að hátta og kyssir okkur öll.
Svo dettur allt í dúnalogn - hvítt segl úti á vognum roðnar og segir niðurlútt við árarnar: ég er alveg að sofna.
Síðan er róið í land.
Posted at 5/3/2007 11:27:44 pm by kollar
Permalink
Thursday, April 26, 2007

ég heiti Aðalsteinn,
ég sit hérna einn,
enginn enþá kominn að sækja mig...
Búin að vera með þetta ansi skemmtilega lag eftir Botnleðjukallana á heilanum í nokkra daga.
Tata. Sjáumst í Loftkastalanum!!
Posted at 4/26/2007 6:51:02 pm by kollar
Permalink
Tuesday, April 17, 2007
Apríl hálfnaður og sem þýðir að fimmtudagsfríin fara að hlaðast upp og umræður um breytingu að hafa fríin frekar á föstudögum frekar en á fimmtud. byrjaðar aftur og allir voða hissa og pirraðir yfir þessu skipulagi.
Tölvan mín er með innbyggðri webcam (ekkert endilega það sem að ég var að sækjast eftir, belive me!) og ég hef prófað þetta aðeins en fæ alltaf svakalegan kjánahroll og slekk á henni strax, og hver er að nenna að horfa á sjónvarpsmynd af mér á msn, en eníveis. Fór þá að hugsa um öllu gelgjubloggin í dag og á hverri síðu sér maður "webcam myndir" hversu sorglegt er að pósa fyrir framan tölvuna og taka myndir af sjálfum sér og skrifa svo alltaf undir "ljóta ég" og svo framvegis.
Let's go fishing for a dream Let's find some place new Somewhere we can be ourselves Some of the time
P.s. Var spurð í dag í vinnunni af hverju ég væri svona (af stelpu á deildinni), og ég spurði. svona hvernig hvað? stelpan: Svona skemmtileg! Vildi nú ekki vera að svara henni en ætli að þetta sé ekki meðfæddur eiginleiki 

Gleðiðlegt sumar - Mi amigos
Posted at 4/17/2007 8:28:23 pm by kollar
Permalink
Thursday, April 12, 2007
and we don't care about the young folks talkin' bout the young style and we don't care about the old folks talkin' 'bout the old style too and we don't care about our own folks talkin' 'bout our own stuff all we care about is talking talking only me and you
fjúddífjú 
Posted at 4/12/2007 10:24:44 pm by kollar
Permalink
louielouie - the world is not like you know it
Blogga? nja.. hugshugs.
Liðin 10 ára og nokkrir dagar frá því að ég fermdist. Man þennan dag alveg ágætlega vel þar sem að það var bæði bensín og mjólkurverkfall og ég fór í minn styðsta hárgreiðslutíma til Heiðu Dísar, hafði reyndar farið í nokkrar prufugreiðslu fyrir, en það er nú sama hún fær samt hrós fyrir það að vera rúmlega tvo tíma að sitja óteljandi krullur í hárið mitt og til að toppa allt saman var settur þessi yndislegi gervihnútur á kollinn. Já heyrði ég ekki einhversstaðar að "beauty is pain" það var hún allavega þennan dag. Fyrir utan 10 cm, hælana var ekkert svakalega gott veður og þegar maður var að þakka krikjugestum fyrir komuna fékk maður allt hárlakkið í munninn.
Er nú búin að komast að fermingaveislur eru eitt það leiðinlegasta sem að ég geri, lennti í einni á mánudaginn þar sem að fólk stóð í röðum til þess að óska fermingarbarninu til hamingju með daginn og þar af auki foreldrunum, til að bæta gráu ofan á svart voru þau skilin og bæði komin með nýja maka og ótjelandi krakkaskara sem að maður hafði aldrei séð áður. Já til hamingju með það. En samt sem áður alltaf gott að fá gott að borða. Maturinn var kærkominn þar sem að ég, mamma og pabbi höfðum eitt páskadagskvöldinu að leita af opnum veitingastöðum í borginni, ég endaði á subway en foreldrarnir á Bsí þar sem að auðvitað var fengið sér sviðakjamma. Nú er sem betur fer komin pása í fermingarveislunum í um það bil 3 ár, eða þangað til að hún Karen Lind fermist. Jidúddamía.

En páskarnir búnir og þeir voru nú bara frekar rólegir, frétti hins vegar að ég hefði verið á balli á föstudaginn á Víkinni, sem að mér finnst nú bara óskiljanlegt því að það er ekkert í minninu sem að segjir til um það.
Posted at 4/12/2007 1:44:46 pm by kollar
Permalink
Tuesday, February 13, 2007
Er ekki alveg að standa mig í þessu bloggveseni, en ég reyni allavega að gera mitt besta. Bíst nú samt ekki við því að vera í miklu internetsambandi næstu tvær vikurnar þar sem að ég er að flytja, jáhá, eina ferðina enn, en það er nú líka þess virði, komin með mína eigin stúdíó íbúð, sem er alveg útaf fyrir mig, kannski ekki alveg á þeim stað sem hentar miðbæjarrottum eins og mér best, en hún er alla leið niður í Gaaaarðabæ, en miðað við "holurnar" sem að ég er búin að vera að skoða niðri bæ þá er þessi sko alveg þess virði, langar ekki sérstaklega mikið að leigja 18 fermetra stúdíóíbúð við hlemm með engu þvottavélatengi á 55000. Það "eina sem vantar" núna er bara lítil kisa.
Það helsta í fréttum er að enginn annar en JUDE LAW kom í vinnuna í morgun með krakkana sína og fylgdarliði. Vinnufélagarnir héldu greinilega að mér fyndist það nú ekkert merkilegt og voru ekkert að láta mig vita af því og ég mætti náttúrulega í vinnuna ógreidd og mygluð. En honum hefur nú greinilega ekki fundist það því hann brosti sínu breiðasta til mín þegar ég mætti honum á leiðinni að ná í kaffið, já fyrsta celebið sem ég hef hitt. Mér hefur nú persónulega aldrei fundist hann neitt hrikalega sætur eða ekki eins og sumir (hulda ) en váááá.
En jæja ætla að slútta þessu áður en að gelgjan nær yfirhöndinni

Posted at 2/13/2007 8:59:03 pm by kollar
Permalink
Tuesday, January 30, 2007
Varúð, dramantísk skrif
Svona fór um sjóferð þá eins og minn elskulegi stærri bróðir mundi segja.
æjiæjiæji, hvað ég vorkenndi honum Snorra Stein mikið. Ég horfði á leikinn með 3 DÖNUM sem að hughreistu mig þegar ég átti bágt með mig og stutt var í tárin, já ég var íþróttamannsleg eftir leikinn og þakkaði Jeppe fyrir góðan leik, tókumst í hendur og enginn illindi eftir leikinn allavega á þessu heimili.
já þó svo að hugurinn er nú að mestu hjá landsliðinu er hann þó aðallega hjá honum Snorra Stein

í blíðu og stríðju, Kolla dramantíska 
Posted at 1/30/2007 9:35:08 pm by kollar
Permalink
Saturday, January 27, 2007
Ný skírð prinsessa

Posted at 1/27/2007 7:00:31 pm by kollar
Permalink
Wednesday, January 24, 2007
mig langar líka í súkkulaðikrem 

og borða það með svona mikilli innlifun!
Posted at 1/24/2007 3:35:35 pm by kollar
Permalink
|
|
|