If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Thursday, May 10, 2007
Sumarið er tíminn

fyrir frjókornarofnæmi. Já ég hef nú sem betur fer verið blessuð að vera ágætlega hraust, fyrir utan þetta helvítis ofnæmi. Fyrir þá sem ekki þekkja lýsir það sér þannig að í um miðjan maí byrja ég að fá kvef, kvef sem varir yfir allt sumarið, einnig virkilega þreytandi kláða í augun sem að eru yfirleitt rauð allt sumarið og lítur þannig út að ég sé alltaf grenjandi.

fyrir fólk með flugnafælni. Já ég má ekki sjá eina litla húsflugu, hvað þá eina mýflugu sem sækjist í tölvuskjáinn á kvöldin, þá byrja ég að slá ölllu frá mér (eins og óð fluga múhaha). Þessa stundina virðist þessi eina mýfluga vera búin að eignast alveg helling af öðrum mýflugufélugum, og þegar ég labba í vinnuna hópast þær yfirleitt í kringum mig og reyna að "komast inn" og virðist nefið vera einstaklega skemmtilegur viðkomustaður.

fyrir fólk með freknur. ein lítil, tvær litlar, þrjár litlar freknur, fjórar litlar, fimm litlar, sex litlar freknur, sjö litlar, átta litlar, níu litlar frekur, tíu litar freknur á Kollu.

Já nei, ég er ekki bitur eða pirruð skal ég segja ykkur.

Þér finnst það í góðu lagi  
Þér finnst það í góðu lagi  
Þér finnst það í góðu lagi
  


Posted at 5/10/2007 10:53:21 pm by kollar

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry