|
|
|
Monday, July 23, 2007
jáh,
- Hver kannast ekki við að nenna ekki að blogga?
- Jáh, hver kannski ekki við drasl?
- og hver kannast ekki við að hafa skemmt sér vel á Humarhátíð?
- oggg hver kannast ekki við að hafa ekki neitt annað að gera en að horfa á Vörutorg, nei líklegast kannast enginn við það.
já maður spyr sig
Posted at 7/23/2007 6:03:36 pm by kollar
Permalink
Monday, June 25, 2007
Já mikið um að vera þessa dagana, kanarnir komnir heim og ekki annað hægt að gera en að tala ensku við hann Birki Snæ, endalaust sætur.
Talandi um kanana þá er ég í fyrsta skipti orðin stoltur eigandi Ipods!
Annars þá eru Hjálmar og Megas að fara að spila á Borgafirði 28 júlí, hver er memm?
ójæja fer svo loksins austur á miðvikudaginn með flugfélaginu sem tekur ekki ferðapunkta, hvað er málið með það? Er einhver sem er með laust far suður eftir helgi 
Enda þessari merkis færslu (eins og alltaf) á afmælisbörnunum í júní

pabbi var 55 ára á laugardaginn, ekki er til nein góð mynd á netinu og þetta er eitt af því sem að ég fékk upp þegar ég googlaði nafnið.

Birkir (eða næsti Eiður Smári Íslands eins og Ingólfur vonar) sæti verður þriggja ára á morgun

flottasti dansari Íslands og besta frænkan á svo afmæli á fimmtudaginn og verður 22 ára (held ég)
Posted at 6/25/2007 11:45:36 pm by kollar
Permalink
Monday, June 18, 2007
Hún heitir ekki Kolla hún heitir Kolbrún en er kölluð Kolla. Takk fyrir að leiðrétta þann miskiling elsku börn.
Er búin að sjá fram á það að ég þurfi ekki á neinni utanlandsferð að halda í sumar, þar sem að mín vinna fer aðallega fram úti, verst að maður geti ekki bara verið á bikiníinu og með sólarolíuna, nei annars, það er kannski verst 
Ein stelpa sem varð tvítug um daginn, sagði að nú biði hún bara eftir að fá jólakortin frá vinkonum sínum þar sem að þær væru allar orðnar óléttar eða komnar með börn. Já hugsaði ég, þetta hlýtur að fara að koma hjá mér (ekki óléttan heldur kortin!), en shit, svo fór ég að að trekkja aðeins í gullfiskaminninu góða. En Kolbrún kölluð Kolla, þú átt allavega 7 vinkonur sem eiga börn og ein önnur að bætast við, vertu heppin að það komi allavega eitt jólakort sem stendur frá þinni vinkonu (ekki það ég telji mig vera neitt óheppna með öll þessi börn ) aðeins ágætt að vita að það er einhver sem stendur með manni í þessu 
Posted at 6/18/2007 11:39:04 pm by kollar
Permalink
Tuesday, June 12, 2007
og síðan hittumst við aftur á miðri leið
...hef ekki sagt neitt merkilegt hér í rúmlega mánuð eða svo, ef að það sem er fyrir sé talið merkilegt :) líf mitt einkennist af bið þessa dagana, að bíða efir Guðrúnu, að bíða eftir The Reynisson family og bumbulíus, að bíða eftir humarhátíð og welcome home veislu á Höfn, að bíða eftir þjóðhátíð, gæti haldið endalaust áfram en ætla nú ekki að drepa ykkur úr leiðindum.
Þó svo að það sé alveg ótrúlega þægilegt að vinna 9-5 vinnu þá líður mér stundum eins og ég sé í the truman show, þegar ég labba í vinnuna á morgnanna sér maður liggur við sama bílana og sama fólkð sem er á leið í sína vinnu, get ekki beðið eftir að komast í rúmlega viku fríið yfir humarhátíð, veijj.
Hún Silja mín var á Íslandi yfir helgina en því miður náðum við ekki að hittast þar sem að skvísan ákvað að það væri sniðugt að stoppa bara yfir eina helgi, mig er farið að langa í Frumskógarhitting!


stay cool
Posted at 6/12/2007 6:18:27 pm by kollar
Permalink
Tuesday, June 05, 2007
Afmælisbarn dagsins

Prinsessan á bauninni númer 2 
Posted at 6/5/2007 2:59:46 pm by kollar
Permalink
Monday, June 04, 2007
Fékk þennan skemmtilega tölvupóst áðan eins og kannsi fleiri, eða vonandi kannski fleiri frá Gabríelu vinkonu minni hjá viagra

já þetta er erfitt val
Posted at 6/4/2007 8:33:38 pm by kollar
Permalink
Tuesday, May 29, 2007
Posted at 5/29/2007 1:08:31 am by kollar
Permalink
Monday, May 28, 2007
Jæja Guðrún farin til Kína í hvorki meira né minna en þrjár vikur!!!
Helgin búin að vera aðeins of nice. Kíkti á austurvöll með Þóru, Hildi og Hörpu í góða veðrinu í gær og ég hélt í smá stund að ég væri komin til Spánar. Já þarna sátum við með bjórinn og pitsuna á meðan gaurarnir við hliðin á okkur spiluðu á gítar. Væri til í að eiga öllum mínum helgum þar í sólbaði. Hitti svo hana Lovísu Ósk og fórum í trúbadorastemminguna á Celtic. Ja hérna, þegar maður er í fríi er ekkert betra að chilla og það er það sem ég ætla sko að gera það sem eftir er dags. Játs, leiðarljós var að byrja og ég hálf skammast mín fyrir það að hafa bara ekki horft á það í rúmlega ár, vegna beverly hills ;) jæja ætla að hætta þessu rugli og komast að því hvað í andskotanum Alan Spaulding var að gera í fangelsi.
Adios
Posted at 5/28/2007 6:00:21 pm by kollar
Permalink
Sunday, May 20, 2007
Follow through Make your dreams come true Don't give up the fight You will be alright Cause there's no one like you in the universe
Don't be afraid What your mind consumes You should make a stand Stand up for what you believe And tonight We can truly say Together we're invincible
During the struggle They will pull us down But please, please Lets use this chance To turn things around And tonight We can truly say Together we're invincible
Do it on your own
It makes no difference to me What you leave behind What you choose to be And whatever they say Your souls unbreakable
During the struggle They will pull us down But please, please Let use this chance To turn things around And tonight We can truly say Together we're invincible
Together we're invincible
During the struggle They will pull us down Please, please Let use this chance To turn things around And tonight We can truly say Together we're invincible
Together we're invincible
hversu flott er þetta lag?
Posted at 5/20/2007 8:39:57 pm by kollar
Permalink
Thursday, May 10, 2007
fyrir frjókornarofnæmi. Já ég hef nú sem betur fer verið blessuð að vera ágætlega hraust, fyrir utan þetta helvítis ofnæmi. Fyrir þá sem ekki þekkja lýsir það sér þannig að í um miðjan maí byrja ég að fá kvef, kvef sem varir yfir allt sumarið, einnig virkilega þreytandi kláða í augun sem að eru yfirleitt rauð allt sumarið og lítur þannig út að ég sé alltaf grenjandi.
fyrir fólk með flugnafælni. Já ég má ekki sjá eina litla húsflugu, hvað þá eina mýflugu sem sækjist í tölvuskjáinn á kvöldin, þá byrja ég að slá ölllu frá mér (eins og óð fluga múhaha). Þessa stundina virðist þessi eina mýfluga vera búin að eignast alveg helling af öðrum mýflugufélugum, og þegar ég labba í vinnuna hópast þær yfirleitt í kringum mig og reyna að "komast inn" og virðist nefið vera einstaklega skemmtilegur viðkomustaður.
fyrir fólk með freknur. ein lítil, tvær litlar, þrjár litlar freknur, fjórar litlar, fimm litlar, sex litlar freknur, sjö litlar, átta litlar, níu litlar frekur, tíu litar freknur á Kollu.
Já nei, ég er ekki bitur eða pirruð skal ég segja ykkur.
Þér finnst það í góðu lagi Þér finnst það í góðu lagi Þér finnst það í góðu lagi
Posted at 5/10/2007 10:53:21 pm by kollar
Permalink
|
|
|